© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
25. mars
Miðaverð frá
4.900 kr.




Margrét Eir, söngur
Andrés Þór, gítar
Þorgrímur Jónsson, bassi
Stórsöngkonan Margrét Eir hefur í rúma þrjá áratugi heillað landsmenn með sinni kraftmiklu rödd, ótrúlegu hæfileikum og óneitanlegum sjarma en hún hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein okkar færasta og ástsælasta söngkona. Á tónleikunum kemur hún fram ásamt tríóisem flytur bland af þekktum gömlum og nýjum jazzlögum með nýrri og lágstemmdri nálgun en öll lögin eiga það sameiginlegt að vera úr söngleikjum. Söngleikirnar spanna nokkra áratugi og meðal höfunda eru Stephen Sondheim, George og Ira Gerswhin og Cole Porter. Margrét hefur sérþekkingu á söngleikjatónlist og leiðir áhorfendur í gegnum uppruna laganna, karakterana og sögurnar á bak við þau og söngleikinn sem þau eru sótt í. Þau Margrét, Andrés Þór og Þorgrímur hafa flutt prógrammið víða.
Á viðamiklum ferli sínum hefur Margrét starfað með fremstu tónlistarmönnum landsins, sungið inn á fjölmargar plötur og komið fram á tónleikum, m.a. reglulega í Salnum, Hofi og í Hörpu. Hún hefur gefið út fjórar sóló plötur og þrjár með hljómsveitinni Thin Jim and the Castaways. Þá hefur hún nokkrum sinnum verið tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna.
Margrét Eir hefur starfað á öllum stærstu leiksviðum landsins og hefur þar leikið og sungið í sumum af vinsælustu söngleikjum sem settir hafa verið á svið á Íslandi, þ.á.m. í sýningunum Oliver, Hárinu, Mary Poppins, Vesalingunum og Chicago, en hún hlaut Grímutilnefningu fyrir hlutverk sitt í þeirri síðastnefndu. Þessa stundina fer Margrét með hlutverk í stórkostlegri uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Moulin Rouge.

