Páll Óskar & Benni Hemm Hemm í Austurbæjarbíói

Austurbæjarbíó

14. maí

Miðaverð frá

6.990 kr.

Tónleikar ársins!

Páll Óskar & Benni Hemm Hemm rifu þakið af Austurbæjarbíói á útgáfutónleikum sínum í október síðastliðnum. Samstundis hófst mikil eftirspurn eftir því að endurtaka leikinn og loksins er komið að því.

Á tónleikunum leika Palli & Benni öll lögin af plötunni Alveg sem hefur ómað um allt land síðan hún kom út. Auk þess verður hent í partí með smellum úr fórum þeirra beggja.

Palli & Benni verða ekki einir á sviðinu - það þarf 40 manns til að púsla saman þessum hljóðvegg - hljómsveit, strengjakvartett, blásara og kór.

Tónleikarnir í október voru tónleikar ársins 2025 - ekki missa af tónleikum ársins 2026.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger