Reykjavík Folk Festival 2026

IÐNÓ

21. mars

Reykjavík Folk Festival snýr aftur, annað árið í röð, dagana 19.-21. mars 2026 næstkomandi. Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram með þetta að leiðarljósi árið 2010. Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival var Ólafur Þórðarson, ástsæll tónlistarmaður í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum auk þess að vera bakhjarl fjöldamargra tónlistarmanna.

Þjóðlagatónlist (e. folk music) hefur stundum verið skilgreind sem tónlist eða tónlistaráhrif sem rekja uppruna sinn til hins venjulega alþýðumanns, tónlistararf sem borist hefur mann frá manni, kynslóð frá kynslóð. Oftar en ekki má rekja þetta til þess að vinir eða fjölskyldan hafa komið saman, sungið og spilað af fingrum fram. Réttara væri því kannski að tala um alþýðutónlist.

Aðaldagskrá Reykjavík Folk Festival fer fram í Iðnó föstudaginn 20. mars og laugardaginn 21. mars.

Opnunarkvöld og setning hátíðarinnar fer fram í Tónlistarmiðstöð og Ægi 101 fimmtudaginn 19. mars ásamt frekari hliðardagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó hina dagana.

Nánari upplýsingar á

facebook.com/reykjavikfolkfestival

instagram.com/reykjavikfolkfestival

DAGSKRÁ:

Fimmtudagur 19. mars

- Tónlistarmiðstöð - ókeypis aðgangur

kl. 17:00 - Setning og almenn gleði, tónlistaratriði og ræðuhöld


- Ægir 101 - ókeypis aðgangur

kl. 20:00 - Reykjavík Trad Sessions, áhugasamir hljóðfæraleikarar velkomnir


Föstudagur 20. mars

- Iðnó - ókeypis aðgangur

kl. 18:00 - MÍT Showcase tónleikar, Ásgeir Helgi & Theodóra


- Iðnó -

kl. 19:00 - Húsið opnar, Ásgeir Ásgeirsson leikur á oud
kl. 20:00 - Svavar Knútur
kl. 21:00 -  Umbra
kl. 22:00 - Óður til íslenskrar alþýðutónlistar (listafólk kvöldsins ásamt Snorra Helgasyni og Brek)


- Ægir 101 -


kl. 23:00 - Eftirpartý, tilboð á barnum fyrir miðahafa

Laugardagur 21. mars

- Iðnó - ókeypis aðgangur, líf og fjör í öllum rýmum!

kl. 13:00 - Danslög Jónasar, kynning og dans
kl. 15:00 - Fjölskyldudagskrá, Klappleikir með Sigga & Ingibjörgu

- Iðnó -

kl.19:00 - Húsið opnar, Margrét Arnar leikur á harmonikku
kl. 20:00 - Soffía Björg & Fríða Dís
kl. 21:00 - Árstíðir
kl. 22:00 - Una Torfa


- Ægir 101 -


kl. 23:00 - Eftirpartý, tilboð á barnum fyrir miðahafa

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger