© 2026 Tix Miðasala
Bæjarbíó
•
11. apríl
Miðaverð frá
8.990 kr.




Classic Rock-hundarnir með Matta og Magna í fararbroddi mæta enn á ný í Bæjarbíó og flytja þekktustu lög gullaldarára rokksins.
Hljómsveitin er annáluð fyrir kraftmikla spilamennsku í bland við létta stemmningu og hlakka meðlimir mikið til að sækja heimavöll Hafnarfjarðar heim.
Rokkþyrstir eru hvattir til að tryggja sér miða í tíma og taka vini og fjölskyldu með, Classic rock og Bæjarbíó sjá um rest."

