© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
6. mars
Miðaverð frá
4.900 kr.




Stórvirki píanótríósins
Upplifðu verk eftir Schubert, Shostakovitsj og Rachmaninoff í Hannesarholti föstudaginn 6. mars kl 19:00.
Píanótríóið samandstendur af Ólínu Ákadóttur píanóleikara, Giuly Johannsen fiðluleikara og Dmitry Drobko sellóleikara.
Þau munu takast á við þrjú stórvirki píanótríósins, allt frá leikandi tóna Schuberts, til litríks tilfinningaflæðis Rachmaninoffs og að lokum innri stríðsátaka Shostakovitsjs.
Um flytjendur:
Ólína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún kemur reglulega fram á ýmsum tónlistarhátíðum ásamt sjálfstæðum verkefnum inn- og erlendis. Hún hefur komið fram sem einleikari m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins. Ólína hefur stundað nám við Tónlistarháskóla Noregs og Konservatoríið í Tbilisi í Georgíu og er nú meistaranemi við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn.
Dmitri Drobko er lettneskur sellóleikari sem hefur stundað tónlistarnám í Lettlandi, Þýskalandi, Íslandi og Rússlandi. Hann hefur komið fram á tónleikasviðum víðs vegar um Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu og hefur starfað með ýmsum hljómsveitum. Dmitri er búsettur á Íslandi þar sem hann starfar sem einleikari og við kammertónlist ásamt því að stunda nám við Listaháskóla Íslands. Auk þess tekur hann þátt í þverfaglegum sviðslistaverkefnum sem sameina tónlist og hreyfingu.
Giuly Johannsen er fiðluleikari frá Kaupmannahöfn í Danmörku. Hún stundaði bakkalárnám við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn og lýkur meistaranámi frá sama skóla vorið 2026 undir leiðsögn Johannes Søe. Giuly hefur sérstakan áhuga á kammertónlist og hefur meðal annars haldið tónleika í Den Sorte Diamant með Den Danske Strygekvartet og í Eldborg með Elju Kammersveit. Hún hefur einnig starfað sem konsertmeistari á útskriftarsýningu Óperuakademíunnar í Danmörku þar sem þau fluttu óperuna Ariodante í kammertónlistarsal Konunglega óperuhússins.

