Brák | Arngerður María og ítalska snemmbarokkið

Salurinn

31. maí

Miðaverð frá

3.900 kr.

Á þessum tónleikum bregður Barokkbandið Brák sér á leik í kammerútgáfu og verða hljóðfæraleikarar 5 talsins. Þá verður frumflutt nýtt verk eftir Arngerði Maríu Árnadóttur tónskáld og verður því teflt saman við ítalska snemmbarokktónlist eftir Marini, Falconieri og Mealli.

Á fyrri hluta barokk-tímabilsins var Ítalía miðstöð tónlistarlegrar nýsköpunar, þar sem ný tónlistarform, leikrænar hefðir, notkun nýrra hljóðfæra og nýrra hljóðfærasamsetninga voru áberandi. Á þessum tíma var lögð mikil áhersla á tilfinningalega tjáningu og nýstárlegar formgerðir, sem gerðu tónlistina dramatískari og tjáningarríkari. Það var þá sem tónskáld á borð við Marini, Falconieri og Mealli kynntu nýjar formgerðir og aðferðir við tónsköpun sem lögðu grunninn að þróun barokk-tónlistar á 17. öld.

Verk Arngerðar Maríu verður innblásið af þessum tíðaranda nýsköpunar, tilraunagleði tilfinningalegu tjáningu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger