Ólöf Arnalds - SPÍRA útgáfutónleikar

Sena Live

7. maí

Sala hefst

13. febrúar 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Ólöf Arnalds - SPÍRA útgáfutónleikar

ALMENN MIÐASALA HEFST 13. FEBRÚAR KL. 10

PÓSTLISTAFORSALA SENU LIVE FER FRAM 12. FEBRÚAR KL. 10

SKRÁNING Í HANA HÉR

Ólöf Arnalds snýr aftur á svið í fyrsta sinn í áratug með nýju Bella Union plötuna sína; Spíra. Ólöf er þekkt fyrir sína einstöku sópran rödd og látlausar en áhrifamiklar útsetningar.

Ólöf er ein virtasta söngkona landsins á sviði nútímalegrar þjóðlagatónlistar. Á Spíru snýr hún aftur á heimaslóðir, með íslenskum textum og þeim nána, mínimalíska hljóðheimi sem færði henni alþjóðlega viðurkenningu.

Tónleikaferðalagið samanstendur af sitjandi, hljóðlátum tónleikum í vandlega völdum rýmum með næma hljóðvist víðs vegar um Bretland og Evrópu, þar sem áhorfendum gefst sjaldgæft tækifæri til að upplifa tónlist Ólafar í sinni tærustu mynd.

Með henni á tónleikunum verða tónlistarmennirnir Skúli Sverrisson og Davíð Þór Jónsson.

Miðaverð er 13.990 kr og aðeins er selt í ónúmeruð sæti.

Umsjón: Sena Live

UM ÓLÖFU

Ólöf Arnalds hefur í tæpa tvo áratugi byggt upp einstakt orðspor með útgáfum sínum og tónleikahaldi. Hún er klassískt menntuð í söng og á fiðlu og vakti fyrst alþjóðlega athygli sem meðlimur í íslensku hljómsveitinni múm snemma á 21. öld.

Frumraun hennar, Við og við, sem Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós framleiddi, varð fljótt að nútímaklassík í íslenskri tónlist og hlaut mörg af virtustu tónlistarverðlaunum landsins.

Ólöf hefur túrað heiminn með Dirty Projectors, Blonde Redhead, Air, CocoRosie, Jonathan Richman, Sigur Rós og Grinderman, og útgáfur hennar hafa hlotið lof gagnrýnenda meðal annars í The New York Times, NME, Mojo, Spin, Paste, Vanity Fair og The Guardian. Hún hefur einnig átt í víðtæku samstarfi við Björk, Ragnar Kjartansson, Skúla Sverrisson, Davíð Þór Jónsson og aðra leiðandi listamenn í íslenskri tónlistar- og myndlistarsenu.

Spíra markar endurkomu hennar að náinni hljóðversvinnu og er hennar fyrsta heila plata í rúmlega tíu ár.

„Dáleiðandi… Með rödd sem er tær eins og fjallalind flytur Ólöf draugalega falleg þjóðlög… Ef þú hefur áður fallið fyrir töfrum Joanna Newsom, þá er þetta fyrir þig.“

— The Sun ★★★★

„Það er röddin sem heillar… Í gegnum fallega og ljómandi tregasöngva flytur hún meistaralega sýnikennslu í hljóðlátri ákefð og tilfinningalegri nákvæmni.“

— HiFi Choice ★★★★

„Spíra snýst um röddina… Jafnvel án þess að skilja tungumálið er ljóst að tilfinningin er kjarninn í því sem tjáð er.“

— The Arts Desk ★★★★

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger