Monstery

Ásmundarsalur

9. - 13. mars

Monstery er síbreytileg innsetning sem umbreytir persónulegum byrðum í skúlptúrískar verur. Verkið byggir á einfaldri en róttækri hugmynd: að það sem við berum í kyrrþey, það sem er ósagt, óþægilegt eða of þungt til að sýna, geti öðlast líkamlegt form og orðið hluti af sameiginlegu rými.

Ferlið hefst hjá gestunum. Þeim er boðið að staldra við og skrifa niður hugsun sem hefur setið fast, hugsun sem hefur ekki fengið farveg. Þessi hugsun er ekki varðveitt sem texti, heldur er hún sett í Tilfinningatætarann þar sem merkingin molnar og verður að efnivið fyrir skrímslin. Orðin missa rödd sína en öðlast nýja tilvist sem hráefni. Úr rifnum pappírsleifum verður til undirstaða skrímsla sem vaxa smám saman í sýningarrýminu.

Þátttakendur geta komið og tætt óvelkomnar hugsanir á opnunartíma safnsins en á viðverutíma listamannanna (kl 12-18 alla virka daga og 12-17 um helgar) geta þeir tekið virkari þátt í skúlptúrgerðinni undir leiðsögn listamanna.

Í lokahófinu föstudaginn 13. mars berum við skrímslin augum, skálum fyrir þeim og kveðjum þau.

Skrímslaverksmiðjan er afrakstur margra ára rannsókna og tilrauna í þátttökulist. Helga Ósk Hlynsdóttir og Karen Briem hafa áður haldið Skrímslaverksmiðju fyrir börn, þar sem sögur og tilfinningar umbreyttust í verur með skúlptúrgerð að vopni. Með tímanum bárust ítrekaðar óskir um að bjóða upp á þátttökuverk fyrir fullorðna — og nú, í fyrsta sinn fær þessi nýja útgáfa að líta dagsins ljós.

Fullkomið fyrir alla sem langar að aftengja hugann og hugsa með höndunum í afslöppuðu rými. Það er alls engin þörf á neinni teikni eða skúlptur reynslu.

Áhugi listamannanna á að umbreyta persónulegum frásögnum í efnislegt form, með áherslu á ferli og samvinnu, kristallast í þessu þáttökuverki.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger