© 2026 Tix Miðasala
Sláturhúsið Egilsstöðum
•
20. - 25. febrúar
Sala hefst
1. febrúar 2026, 12:00
(eftir 4 daga)




Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum kynnir með stolti Fyrsta kossinn!
Fyrsti kossinn er söngleikur eftir Brynju Ýr Júlíusdóttur og Guðlaug Ómar Guðmundsson sem fjallar um líf og ástir meðlima hljómsveitarinnar Ásanna sem reyna að meika það með því að vinna eina stærstu hljómsveitarkeppni landsins, Músíktilraunir. Þegar aðalsöngkonan bregður sér til London þá eru góð ráð dýr og strákarnir í hljómsveitinni þurfa að finna sér nýja söngkonu og þá flækjast málin í lífi hljómsveitarmeðlimanna. Lifandi tónlist, söngur og dans einkenna sýninguna.

