© 2025 Tix Miðasala
Safnaðarheimili Neskirkju
•
14. janúar
Miðaverð frá
47.500 kr.




Karamazov-bræðurnir: Námskeið undir leiðsögn Gunnars Þorra
Karamazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí er eitt af höfuðverkum heimsbókmenntanna. Á námskeiðinu mun fræðimaðurinn og þýðandinn Gunnar Þorri Pétursson ljúka upp undraheimum þessarar miklu skáldsögu og kryfja til mergjar í lifandi samræðu við gesti þær áleitnu spurningar sem Dostojevskí spyr um ástina, sálardjúp mannsins, tilvist Guðs, framtíð Rússlands og alls mannkyns.
Gunnar Þorri hefur tvívegis hlotið Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingar sínar á rússneskum bókmenntum, hann gerði þáttaröðina Rús fyrir Ríkisútvarpið og hefur haldið úti þéttsetnum námskeiðum á Hótel Holti um rússneskar bókmenntir um árabil. Námskeið um Karamazov-bræðurna hefur verið haldið í tvígang og í bæði skiptin seldist upp.
Athugið að námskeiðið er haldið í Neskirkju en er í senn fyrir lærða og leika, gestir þurfa ekki að mæta undirbúnir og skáldsagan verður lesin í hæfilegum skömmtum á tímabilinu sem námskeiðinu stendur yfir.
Námskeiðið er styrkhæft hjá ýmsum stéttarfélögum.
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri.
Námskeiðið er 5 dagar: 14., 21., og 28. janúar, og 4. og 11. febrúar

