Páll Óskar - Annar í jólum

Austurbæjarbíó

26. desember

Miðaverð frá

5.990 kr.

Páll Óskar Jólaball 26. des

Annar í jólum hefur ekki verið svona partíglaður í mörg ár. Hann lendir þetta árið á föstudegi, frí daginn eftir, svo það má djamma með Palla. Austurbæjarbíó er að stimpla sig inn sem einn besti tónleikastaður Reykjavíkur. Páll Óskar er Íslands dáðasta popp goðsögn / pottþéttasta partídýr Íslandssögunnar og hann hefur aldrei verið í betra formi. Þetta kvöld mun hann telja í rúmlega 30 ár af stanslausum hitturum ásamt fríðu föruneyti frá 22.00 til 2.00.

Nýjasta hinsegin poppstjarnan, Torfi, mun trylla gólfið með frumsömdu eðalpoppi og Cris Artista mun taka tjúllað show en hún er dragdrottning á heimsmælikvarða.

Þú átt það skilið að sletta úr klaufunum eftir allt jólastressið, svo skelltu þér í ballskóna og elskaðu lífið með Palla.

Húsið opnar kl. 20.00

Palli keyrir stuðið áfram frá 22.00 til 2.00

Miðaverð: 5.990 kr.

Aldurstakmark: 20+  

Munið skilríkin.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger