© 2025 Tix Miðasala
Skálholtskirkja
•
14. desember
Miðaverð frá
0 kr.




Jólatónleikar Skálholtskórsins 14. desember klukkan 18:00 Þriðja sunnudag í aðventu.
Hátíðlegir jóla og aðventutónleikar í Skálholti. Flutt verða fjölbreytt aðventu og jólalög sem koma öllum í sannkallað jólaskap. Meðal verka sem verða flutt eru; Hin fyrstu jól, Slá þú hjartans hörpustrengi, Jólafriður, White Christmas, Þorláksmessukvöld, Það aldin út er sprungið, Guðs kristni í heimi og margt fleira.
Á tónleikunum verður leikið á nýja Steinway flygilinn, orgelið og trompet sem er virkilega spennandi hljóðfærasamsetning.
Jóhann I. Stefánsson leikur á trompet
Pétur Nói Stefánsson leikur á orgel og flygil.
Stjórnandi: Jón Bjarnason
Miðaverð 4000 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri.

