© 2026 Tix Miðasala
Akureyrarkirkja
•
22. desember




Jólagrautur og sætur spuni á jólatónleikum Hymnodiu sem eru orðnir ómissandi hluti af jólahefðum margra að kvöldi 22. desember þegar kominn er tími til að hægja ferðina í jólaamstrinu. Kyrrð og ró í bland við hressa og jafnvel djassaða jólatóna Eyþórs Inga Jónssonar og vina hans í Hymnodiu ásamt góðum gesti sem að þessu sinni kemur frá tónlistarbænum Dalvík, spunameistarinn og tónsnillingurinn Þórður Sigurðarson. Glænýtt jólaefni í bland við gamalt í frumlegum búningi að hætti Hymnodiu. Takið kvöldið frá.

