© 2026 Tix Miðasala
Bæjarbíó
•
17. apríl
Miðaverð frá
7.990 kr.




Herbert Guðmundsson - Flakkað um ferilinn
Herbert Guðmundsson á sér feril sem er bæði litríkur og líflegur, og það er nákvæmlega það sem „Flakkað um ferilinn“ fangar. Hann hefur árum saman verið einn kraftmesti sviðsmaður landsins; fyllt sali með rödd sem nær beint í magann og persónutöfrum sem enginn annar hefur, þetta er einfaldlega innbyggt í Herbert.
Ferillinn spannar bæði stórsmelli og dýpri perlur, og á þessum tónleikum ferðast áhorfendur í gegnum áratugi af lögum sem hafa lifað með þjóðinni. Það er mikil gleði, húmor og hrá orka í öllum uppákomum hans, og þessi kvöldstund verður engin undantekning.
„Flakkað um ferilinn“ er fyrir alla sem vilja upplifa söngvara sem gefur alltaf 110% og heldur enn þá uppi stemmningu sem fáir ná að toppa. Þetta verður alvöru kvöld með Herberti, alveg í hans anda.
Þeir sem verða með okkur á Flakkað Um ferilinn eru:
Herbert Guðmundsson söngur og munnharpa
Þórir Úlfarsson hljómborð og tónlistarstjóri
Pétur Valgarð Pétursson gítar
Helgi Reynir Jónsson gítar og raddir
Friðrik Sturlusson bassi
Ingólfur Sigurðsson trommur
Phil Doyle sax
Bakraddir: Rakel Pálsdóttir og Kristján Gíslasson
Guðmundur Herbertsson söngur og bakraddir / prompter
Sérstakur heiðursgestur verður Stefán Hilmarsson
Verkefnastjórn Haukur Henriksen

