© 2025 Tix Miðasala
Margar staðsetningar
•
19. - 22. desember
Miðaverð frá
3.500 kr.




Mozart við kertaljós í kirkjum
Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin.
Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og þrjú ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari, Sigurður Halldórsson sellóleikari og gestur er Gillian Haworth óbóleikari. Á dagskránni eru þrjú glæsileg kammerverk eftir Mozart en það eru Kvartett fyrir óbó og strengi í F Dúr kv 370, Kvartett fyrir strengi í C-Dúr kv.465 og Kvartett fyrir klarinettu og strengi í Es Dúr kv 380.
Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.
Tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju föstudagskvöldið 19. des, í Kópavogskirkju laugardagskvöldið 20. des, í Garðakirkju sunnudagskvöldið 21. des og í Dómkirkjunni í Reykjavík mánudagskvöldið 22. des. Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00 og er einungis lýst með kertaljósum. Aðgangseyrir er kr. 3500 og frítt inn fyrir börn. Miðasala við innganginn og á Tix.is.

