Rauðu Jólin

Hlégarður

11. desember

Sala hefst

20. nóvember 2025, 09:00

(eftir 3 daga)

Komdu í þinni ljótustu jólapeysu og taktu þátt í fjörinu.

Við fögnum jólunum saman á Rauðu Jólunum – kvöldi fullt af hlátri, góðri tónlist og notalegri jólastemningu.

Allur ágóði rennur til Grænuhlíðar, sem styður börn, ungmenni og fjölskyldur um allt land.

Að frumkvæði Jökuls Júlíussonar.

  • Dagsetning: 11. desember 2025

  • Tími: kl. 19:30

  • Staðsetning: Hlégarður, Mosfellsbæ

  • Rúta: Leggur af stað kl. 19:00 frá Kjarval vinnustofu

  • Miðaverð: 4.900 kr / 8.900 kr með rútu

Dress code: Ljót jólapeysa

Þetta er ekki kvöldið fyrir fín föt – heldur fyrir ljótustu, litríkustu og fyndnustu jólapeysuna sem þú átt.

Skreyttu þig með glimmeri, ljósum eða jólaskrauti – vegleg verðlaun bíða ljótustu peysunnar.

Uppboð:

Uppboð á verðmætum hlutum – þar á meðal glænýtt málverk eftir Ella Egils og árituð Manchester United treyja.

Allur ágóði af miðasölu og uppboði rennur til styrktarmálefnis ársins, Grænuhlíðar – fjölskyldumiðaðs geðheilbrigðisúrræðis sem styður börn og ungmenni á aldrinum 0–25 ára og fjölskyldur þeirra með áfallamiðaðri og tengslaeflandi nálgun.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger