© 2025 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
20. desember
Miðaverð frá
6.900 kr.




Píanóleikarinn Kári Egilsson og einvala lið íslenskra tónlistarmanna flytja nýtt efni eftir Kára sem verður tekið upp á nýju ári ásamt nokkrum vel völdum eldri lögum í Hannesarholti 20. desember. Ásamt Kára verða Snorri Sigurðarson á trompet, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar, Nico Moreaux á bassa og Matthías Hemstock á trommur. Kári var valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2024 og stundar nú nám við hinn virta Berklee tónlistarskóla í Bandaríkjunum.
Kári Egilsson - píanó
Snorri Sigurðarson - trompet
Andrés Þór Gunnlaugsson - gítar
Nico Moreaux - bassi
Matthías Hemstock - trommur

