John Rutter: Magnificat

Margar staðsetningar

22. - 23. nóvember

Miðaverð frá

3.000 kr.

Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins (Ungfónía) halda tónleika í Langholtskirkju laugardaginn 22. nóvember kl. 17.00.

Á efnisskrá eru þrjú verk: Forleikurinn að Töfraflautunni eftir Mozart, Rhapsody in Blue eftir Gershwin og Magnificat eftir John Rutter. Einleikari á tónleikunum er Anna Þórhildur Gunnarsdóttir píanóleikari og einsöngvari er Hanna Ágústa Olgeirsdóttir sópran. Stjórnandi á tónleikunum er Gunnsteinn Ólafsson. Tónleikarnir verða endurteknir í Reykholtskirkju í Borgarfirði sunnudaginn 23. nóvember kl. 16.00.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger