© 2025 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
2. desember
Sala hefst
3. nóvember 2025, 12:00
(eftir 23 klukkustundir)




Hnotubrjóturinn - Jólasýningar Dansgarðsins Óskanda verður 2. desember kl. 16:00 og kl. 18:30.
Nú er komið að jólahefð Dansgarðsins, dansverkinu Hnotubrjótnum. Í ár eru um 150 nemendur sem taka þátt í uppfærslunni og hlökkum við til að deila með ykkur þessu skemmtilega jólaverki sem kemur öllum í hátíðarskap.
Sagan um Hnotubrjótinn í útfærslu Dansgarðsins Óskanda hefst í jólaboði þar sem Drosselmeyer frændi, göldróttur úra- og leikfangasmiður, kemur í heimsókn. Hann gefur guðdóttur sinni, Klöru, hnotubrjót sem er í álögum en lifnar við eftir að Klara sigrar rottukónginn í bardaga. Klara og hnotubrjóturinn fara inn í töfraskóg þar sem englar og snjókorn dansa. Næst fara þau í konungsríki úr sykri, þar sem sykurplómudrottningin tekur á móti þeim og mikil veisla er haldin í tilefni af komu þeirra. Þar dansa ýmiss konar góðgæti eins og piparkökur, marsipan, karamellur, nammistafir, súkkulaði og að lokum blómaprinsessur.
Hnotubrjóturinn er skemmtilegt ævintýri, fullt af töfrum. Verkið er blanda af nútímalistdansi og klassískum ballett.
Dansverkið byggir á sögu E.T.A. Hoffmann og er flutt við sígilda tónlist Pyotr Ilyich Tchaikovsky.

