Haukur Gröndal fagnar 50 ára afmæli með stórtónleikum í Hörpu

Harpa

30. desember

Miðaverð frá

4.790 kr.

Saxófón- og klarínettleikarinn, tónskáldið og útsetjarinn Haukur Gröndal fagnar 50 ára afmæli með stórtónleikum í Norðurljósasal Hörpu þriðjudagskvöldið 30. desember 2025. Haukur á að baki yfir þrjátíu ára feril í íslensku og alþjóðlegu tónlistarlífi, þar sem hann hefur skapað sér einstakan sess fyrir frumlega rödd, óvenjulega næmni og djúpa sköpunargleði.

Haukur hefur tekið þátt í fjölda tónlistartengdra verkefna á ferli sínum – allt frá lifandi tónlistarflutningi og tónsmíðum til útsetninga og útgáfu tónlistar, bæði hér heima og erlendis. Hljóðheimar hans eru marglaga og persónulegir; stundum spunakenndir og hráir, stundum silkimjúkir og íhugulir – ávallt undir sterku leiðarljósi sköpunar og ástríðu.

Ferill og menntun

Tónlistarnám hóf Haukur í Tónlistarskóla Garðabæjar á barnsaldri, en lauk síðar burtfararprófi í saxófónleik frá Tónlistarskóla FÍH árið 1997. Hann hélt síðan til Danmerkur og lauk meistaranámi frá Rytmisk Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn árið 2004. Frá upphafi hefur Haukur unnið ötullega að þróun eigin tónmáls, oft á mörkum djass, klassíkur, heimstónlistar og þjóðlagaarfs.

Tónleikarnir – ferðalag í gegnum tón og tíma

Á efnisskrá tónleikanna eru verk úr ólíkum tímabilum ferilsins – hlustendum er boðið í ferðalag málað persónulegum og ljóðrænum litum. Með sér á sviði hefur Haukur úrvals tónlistarfólk sem hann hefur starfað með í gegnum árin í fjölbreyttu samhengi.

Þetta verður kvöld þar sem núið og minningarnar stíga dans, þar sem þögn og tónn mætast í djúpum samræðum – og hlustandinn verður ekki aðeins gestur, heldur virkur þátttakandi í sögu í mótun.

Þátttakendur

• Haukur Gröndal

• Ragnheiður Gröndal

• Guðmundur Pétursson

• Ásgeir Ásgeirsson

• Þorgrímur Jónsson

• Erik Qvick

• Óskar Guðjónsson

• Snorri Sigurðarson

• Samúel J. Samúelsson

• Magnús Trygvason Eliassen

• Birgir Steinn Theódórsson

• Pétur Grétarsson

• Ólafur Jónsson

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger