Alter Eygló - Frumsamin karókítónlist, fjárfesting til framtíðar

IÐNÓ

12. nóvember

Miðaverð frá

2.900 kr.

Klassíska tónskáldið Eygló Höskuldsdóttir Viborg stendur á krossgötum. Hinn klassíski tónlistarheimur er harður húsbóndi og lítinn sem engan pening að hafa upp úr krafsinu. Hún hefur því samið átta popplög til að ná til fleiri eyrna og í von um að þau verði vinsæl á karókíbörum landsins.

Í sýningunni mun hliðarsjálf hennar, Alter Eygló, flytja lögin ásamt því að velta vöngum yfir því hvernig hún eigi að ná endum saman af tónlistinni einni saman.

Áhorfendur fara í ferðalag þar sem þeir líta í eigin barm varðandi neyslu á tónlist og vinnuna sem liggur á bakvið hana.

Eygló Höskuldsdóttir Viborg er með meistaragráðu í tónsmíðum frá New York University og meistaragráðu í sviðslistum frá Listaháskóla Íslands. Á ferlinum hefur hún skrifað fjölda verka, meðal annars fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, JACK Quartet, Cauda Collective og Hljómeyki. Hún er í sviðslistahópnum Slembilukka og er meðlimur Tóma rýmisins. Í sviðslistum hefur hún unnið með hliðarsjálf sitt, Alter Eygló, sem skrifar og flytur frumsamin karókílög.

Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á https://www.reykjavikdancefestival.com/

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger