DesignTalks 2026

Harpa

6. maí

Miðaverð frá

17.900 kr.

DesignTalks 2026

  

Þessi alþjóðlega hönnunarráðstefna er hjarta HönnunarMars hátíðarinnar.

Dagurinn endurspeglar fjölbreytileika hönnunarheimsins og viðfangsefni og á erindi við öll. Fjallað er um allt frá arkitektúr og vöruhönnun til stafrænnar uppplifunar, sjálfbærni, tísku og menningarlegra áhrifa, um leið og skyggnst er á bakvið tjöldin.

Tengingar, þema HönnunarMars þræða sig í gegnum daginn, en í heimi sem einkennist bæði af ofurtengingu og aftengingu er sjónum beint að grunnþörf manneskjunnar fyrir tengsl. Ljósi er varpað á hlutverk hönnunar í að styrkja samfélög, efla samvinnu og skapa merkingarbær tengsl í samtímanum.

Hér mætast hugmyndir, fólk og framtíðarsýn á einum stað.

Fyrir hádegi
Hjalti Karlsson, grafískur hönnuður, stofnandi Karlssonwilker
Stefan Sagmeister, hönnuður
Terta // Elliðaárstöð, Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt og Margrét Hugadóttir, vísindamiðlari
Kristjana S.Williams, listakona og hönnuður

Eftir hádegi
Dorte Mandrup, arkitekt, stofnandi og Creative Director Dorte Mandrup Arkitekter A/S
1+1+1, tilraunasamstarfsverkefni Hugdettu, Aalto Aalto og Petru Lilju
RANRA, Arnar Már Jónsson og Luke Stevens hönnuðir, stofnendur tískumerkisins
1 Granary, Olya Kuryshchuk founder, Editor-in-Chief and Jorinde Croese Editorial Director tísku og hönnunarfræðslu vettvangsins

Viðburðurinn fer fram á ensku og stendur frá kl 9:00-17:00. Kafaðu dýpra hér.

*dagskrá birt m.fyrirvara

DesignTalks hefur verið lykilviðburður HönnunarMars frá upphafi hátíðarinnar og fest sig í sessi sem öflugur vettvangur innblásturs og lifandi samtals milli fremstu hönnuða og arkitekta samtímans. Listrænn stjórnandi er Hlín Helga Guðlaugsdóttir og Þura Stína Kristleifsdóttir framleiðir fyrir Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger