Tónlist Veigars Margeirssonar - útgáfutónleikar - Stórsveit Reykjavíkur

Harpa

15. febrúar

Miðaverð frá

6.490 kr.

Tónlist Veigars Margeirssonar - útgáfutónleikar

Tónleikar í tilefni af útkomu nýrrar plötu með tónlist Veigars Margeirssonar, Five Birds, sem var tekin upp með Stórsveit Reykjavíkur haustið 2025. Tónlistin var samin sérstaklega fyrir sveitina á undanförnum árum. Hér er um að ræða í senn nútímalega, fjölbreytta og aðgengilega stórsveitatónlist, útsetta af mikilli fagmennsku. 

Veigar bjó um árabil í Bandaríkjunum og hefur verið atkvæðamikill sem tónskáld á sviði kvikmynda-, sjónvarps- og auglýsingatónlistar, bæði hér heima og erlendis, og er sérstaklega þekktur fyrir tónlist við kvikmyndastiklur. Meðal slíkra verkefna hans má nefna Ready Player One, The Lord of the Rings: The Two Towers, Batman Begins og Joker, sem hlaut Clio Key Art verðlaunin fyrir tónlist. Sem útsetjari hefur hann meðal annars starfað með Los Angeles Philharmonic og The Hollywood Bowl Orchestra. 

Nýlega samdi hann tónlist við íslensku sjónvarpsseríuna Reykjavík Fusion, sem nú er sýnd víða um heim. Þótt hann hafi á undanförnum árum einkum unnið með blöndu sinfónískrar tónlistar og hljóðgervla, snýr hann hér aftur að rótum sínum í jazzi og stórsveitatónlist. Hann hlaut verðlaun fyrir bestu kvikmyndatónlistina á Badalona kvikmyndahátíðinni 2011, hefur verið tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna og hefur tekið þátt í mörgum verðlaunuðum auglýsingaherferðum víða um heim.

Veigar Margeirsson stjórnar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger