© 2025 Tix Miðasala
Salurinn
•
25. apríl
Miðaverð frá
6.900 kr.
SÖNGLEIKJASTÆLAR | VIÐLAG
Söngleikjastælar snúa aftur vegna fjölda áskoranna. Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún mæta í Salinn með tónleikaröðina SÖNGLEIKJASTÆLA.
Tónleikaröðin sló í gegn í fyrra og er óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit.
Gestir kvöldsins eru gleðisprengjurnar í Söngleikjakórnum Viðlagi. Viðlag hefur stimplað sig inn sem einstakur söngleikjakór í íslenskum sviðslistum. Kórinn hefur haldið metnaðarfulla kórtónleika og leiksýningar frá stofnun hans árið 2021. Þess má geta að frumsamið leikverk kórsins “Við erum hér” sló í gegn í Tjarnarbíó síðasta vetur.
---
Að þessu sinni verða þrennir tónleikar í tónleikaröðinni Söngleikjastælar sem teygja sig yfir allan veturinn þar sem hverjir tónleikar eru með ólíka nálgun á formið. Ekki missa af enn meiri Söngleikjastælum:
2. nóvember: Nýstirnið Salka Gústafsdóttir og þjóðargersemin Jóhann Sigurðarson koma sem gestasöngvarar og flytja sín uppáhalds söngleikjalög.
7. febrúar: Sprúðlandi fjölskyldutónleikar um miðjan dag þar sem börn á öllum aldri fá að syngja með.
SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA ÁSKRIFT Á ALLA ÞRENNA TÓNLEIKANA Á AÐEINS 14.900 KR!