© 2025 Tix Miðasala
Sena Live
•
13. mars
Sala hefst
24. október 2025, 10:00
(eftir 4 daga)
ALMENN MIÐASALA HEFST 24. OKTÓBER KL. 10
PÓSTLISTAFORSALA SENU LIVE FER FRAM 23. OKTÓBER KL. 10
SKRÁNING Í HANA HÉR
Loksins er ISMO á leiðinni til Íslands! Hann er þekktur um allan heim sem fulltrúi þeirra sem tala ensku sem annað tungumál. ISMO hefur sigrað áhorfendur bæði á netinu og á sviði með fyndnum ábendingum um tungumál, menningu og fáránleika hversdagsins.
Og nú er komið að þér að hlæja með, í Höllinni 13. mars!
ISMO: Perseverance Tour hefst árið 2026 með glænýju efni og athugasemdum innblásnum af finnsku hugrekki og þrautseigju – eða SISU eins og Finnar segja. Hann ætlar að ferðast um Bandaríkin, Kanada, Ástralíu, Evrópu, Miðausturlönd, Suður-Afríku og Asíu og það er mikið gleðiefni að einn af viðkomustöðunum sé Ísland.
ISMO sameinar beittan húmor og finnska hörku í bráðfyndinni sýningu sem er sniðug, óvænt og stórskemmtileg.
ATHUGIÐ: Efni sýningarinnar er ætlað fullorðnum; 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd forsjáraðila.
MIÐAVERÐ:
Gull sæti: 16.990 (gult á mynd)
Silfur sæti: 14.990 (silfur á mynd)
A+ sæti: 12.990 (fjólublátt á mynd)
A sæti: 10.990 (bleikt á mynd)
B+ sæti: 9.990 (sægrænt á mynd)
B sæti: 7.990 (grænt á mynd)
C sæti: 5.990 (blátt á mynd)
ATH:
- Gull og Silfur miðar hafa sérinngang.
- Í B+ sætum er um hliðarsýn að ræða.
- Hjólastólasvæði: 2.995 kr. (blátt á mynd). Einnig þarf að kaupa miða fyrir fylgdar/aðstoðarmanneskju.
Mynd af sal hér
Umsjón: Sena Live
UM ISMO
ISMO er alþjóðlegur uppistandari, rithöfundur, rallýökumaður og snillingur í orðaleikjum. Hann er nýkominn til baka eftir að hafa brotið bakið, en það finnst honum reyndar bara fyndið. Hann er fyndnasta útflutningsvara Finna og er nú mættur aftur á svið, betri en nokkru sinni fyrr!
Síðan hann flutti til Bandaríkjanna hefur hann komið fram í fjölmörgum sjónvarpsþáttum, til að mynda á NBC, CBS, í Just For Laughs og Top Gear Finland. Upphaflega sprengdi hann internetið með frægasta Conan-bút allra tíma, en hann fékk yfir 135 milljón áhorf! Ári síðar steig hann á svið hjá James Corden og þar fór boltinn að rúlla fyrir alvöru – fylgjendur margfölduðust og brandararnir tóku á flug.
Fylgstu með ISMO á samfélagsmiðlum fyrir vikuleg fyndin myndbönd og bakvið-tjöldin augnablik: @ISMOcomedy
Dagskrá, varningur og fleira: ismo.fun