Sigurður Guðmundsson | Af fingrum fram

Salurinn

20. mars

Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum.

Siggi Hjálmur er kallaður Silfurfálkinn af sumum en við köllum hann Sigurð Guðmundsson.  Undanfarin ár hefur hann verið í fremstu víglínu íslenskra tónlistarmanna og er jafnvígur sem hljóðfæraleikari, söngvari , laga- og textasmiður.  Hljómsveit hans Hjálmar hefur fyrir margt löngu aflað sér mikils fylgis og virðingar meðal Íslendinga auk þess sem tríóið Góss sló í gegn fyrir nokkrum árum en þar er hann og meðlimur.  Við kynnumst þessum magnaða listamanni í orði og æði þegar hann heilsar upp á Jón Ólafssson.

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger