Risapartý Timmy Trumpet og Fermingarafmæli FM95blö

Nýja Laugardalshöll

31. maí

Fermingarveisla aldarinnar í Laugardalshöll 31. maí 2025

Það eru komin 14 ár síðan útvarpsþátturinn FM95BLÖ hóf göngu sína. Og þið vitið hvað það þýðir – það er kominn tími til að ferma hann!

Við höldum ekki partý nema við séum 100% vissir um að toppa það síðasta – það er boðorð hjá fermingardrengjunum. Við lofum því stærsta og flottasta showi sem Ísland hefur séð. Ljós, hljóð og umgjörð verða í sérflokki, ekkert til sparað!

Timmy Trumpet, einn stærsti og án efa skemmtilegasti DJ heims í dag, mun heiðra okkur með nærveru sinni. Hann kemur alla leið frá Ástralíu og er í fyrsta sinn á Íslandi! Þeir sem hafa séð hann áður vita hversu mikla orku hann setur í hvert show og allir sammála um að enginn betri á sviðinu en hann.

AXMO, geggjaða DJ-teymið með yfir yfir 350 milljón streymi á Spotify munu einnig trylla lýðinn.

En það er ekki allt! Við fáum til liðs við okkur súperstjörnur og góða vini - Herra Hnetusmjör, Jóhanna Guðrún, Sverrir Bergmann, Sveppi og læknasystkinin DJ Eva Mey og Doctor Victor, svo þið verðið í öruggum höndum!

Að auki munum við tilkynna leynigesti þegar nær dregur að tónleikunum – svo fylgist vel með á viðburðinum á Facebook.

Ekki missa af skemmtilegustu tónleikum fyrr og síðar í Laugardalshöllinni, 31. maí 2025. Þetta verður stærsta show sem fermingardrengirnir í FM95BLÖ hafa nokkurn tímann haldið – that's a promise.

Síðast seldist upp, svo vertu á tánum og tryggðu þér miða!

20 ára aldurstakmark er á viðburðinn.

Samstarfsaðilar okkar: Pepsi Max, Gull, Jägermeister og Dominos.

Final line up 

Auðunn Blöndal

Steindi Jr

DJ Muscleboy

Sverrir Bergmann

Jóhanna Guðrún

Sveppi Krull

Halldór Gunnar

Rikki G

Fjallabræður

Prettyboitjokkó

Doctor Victor

Eva Mey

Herra Hnetusmjör

Birnir

Saint Pete

Merzedes Club

Klaas

AXMO

Timmy Trumpet

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger