State of the Art 2025

Reykjavík

8. október

Miðaverð frá

12.900 kr.

Eftir frábærar viðtökur hafa aðstandendur State of the Art þegar hafið skipulagningu næstu hátíðar. Nú gefst einstakt tækifæri til að kaupa passa á næstu hátíð á ótrúlegum kjörum eða „super early bird” verði. Hátíðarpassi á einungis 12.900kr veitir aðgang að allri veislunni sem borin verður á borð haustið 2025. Þegar nær dregur hátíð hækkar verðið á passanum svo þeir sem vilja vera snemma í því geta gert góð kaup strax í dag!

Hátíðin er stofnuð í þeim tilgangi að skapa nýjan vettvang til aukins samstarfs milli listamanna, auka blöndun strauma og stefna og leita að nýju samhengi fyrir tónlist á ýmsum aldri. Hún er ekki bundin við eina ákveðna tónlistar- eða listastefnu heldur setur sígilda tónlist í nýtt samhengi, blandar saman listamönnum úr mismunandi stefnum og setur listafólk sem aldrei hefur unnið saman áður í nýjar aðstæður.

Nafn hátíðarinnar hefur tvíþætta merkingu: Orðasambandið State of the Art er gjarnan notað um nýjustu tækni og vísindi, það sem efst er á baugi. Í sömu andrá beinir það sjónum að núverandi ástandi í listinni og tengist þannig meginstefi hátíðarinnar, sem er samtími. Á dagskrá hátíðarinnar mætast ný verk og gömul á framandi fleti. Þegar rætt er um samtímalist eiga mörg það til að tengja hugtakið við eitthvað sem þykir krefjandi fyrir augu og eyru. State of the Art skorar þau hugrenningatengsl á hólm og hefur léttleikann í fyrirrúmi í grafalvarlegri glímu sinni við samtímann.

Að hátíðinni standa Bjarni Frímann Bjarnason, Bergur Þórisson, Magnús Jóhann Ragnarsson og Sverrir Páll Sverrisson. Sín á milli hafa þeir viðamikla reynslu af ýmiss konar tónlist. Bergur er básúnuleikari, upptökustjóri og fleira. Hann hefur meðal annars starfað sem tónlistarstjóri Bjarkar Guðmundsdóttir undanfarin 7 ár, auk þess að vera einn stofnenda Reykjavík Recording Orkestra í Hörpu. Magnús er píanóleikari og athafnamikill tónlistarmaður á íslandi í dag, en hann fæst við tónsmíðar, upptökustjórn og tónlistarflutning í frjálsum djassi, rappi, poppi og ýmsu öðru. Bjarni er hljómsveitarstjóri og tónskáld sem hefur komið víða við í tónlistinni, en sígild tónlist á hug hans allan. Nýverið var Bjarni ráðinn sem listrænn stjórnandi hjá Bit20 hljómsveitinni í Bergen. Sverrir lauk meistaranámi í verkefnastjórnun árið 2021 og hefur síðan þá fengist við fjölda viðburða, tónleika, leiksýningar og fleira.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger