Jónas Sig ásamt hljómsveit í Eyjum

Höllin Í Vestmannaeyjum

22. febrúar

Miðaverð frá

5.900 kr.

Jónas Sig snýr aftur til Vestmannaeyja með hljómsveitina sína og verður nú með tónleika í Höllinni 22. febrúar. Jónas þarf vart að kynna fyrir Vestmannaeyingum enda hefur hann og hljómsveitir hans spilað fyrir fullu húsi hverja tónleikana á fætur öðrum í árana rás og margar göldróttar minningar skapast sem seint munu gleymast þeim sem það upplifðu.

Ferill Jónasar spannar allt aftur í gamla sveitaballið þegar Jónas var einn af forsprökkum Sólstrandargæjanna og söng lög eins og Rangur maður og Sólstrandargæi. Það var stuttur tími en nokkrum árum seinna eftir hlé frá bransanum sneri Jónas aftur með eigið efni sem kom mörgum á óvart. Þar með djúpum, ógleymanlegum perlum eins og Hafið er svart, Milda hjartað og Faðir og auðvitað partý-stuð-ádeilum eins og Hamingjan er hér, Hleypið mér út úr þessu partýi, Baráttusöngur uppreisnarklansins og svo mætti lengi telja.

Það er mikil tilhlökkun fyrir þessum tónleikum hjá Jónasi og félögum og spenningur að snúa aftur til Eyja. Ógleymanlegu kvöldi lofað.

Jónas Sig kemur með hljómsveitina sína sem er skipuð Ómari Guðjónssyni á gítar, Tómasi Jónssyni á orgvélar og syntha, Arnari Gísla á trommur og Guðna Finns á bassa.

Húsið opnar kl. 20 og tónleikar hefjast kl. 21.00. Miðaverð við hurð er 6.900 kr.

hollin

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger