Afmælistónleikar Rokkkórs Íslands ásamt Eiríki Haukssyni

Harpa

25. apríl

Miðaverð frá

7.565 kr.

Athugið að fram til 13. október fæst aðgöngumiðinn á sérstöku forsöluverði kr. 7.565,- 

Tryggið ykkur miða í tíma!

Rokkkór Íslands fagnar 10 ára afmæli sínu með stæl og fær til liðs við sig landslið hljóðfæraleikara og einn ástsælasta rokksöngvara þjóðarinnar Eirík Hauksson. Vegna búsetu hefur Eiríkur Hauksson ekki komið mikið fram á Íslandi og er því um stórviðburð að ræða. Flutt verða lög sem hann hefur gert fræg í gegnum tíðina í nýjum útsetningum fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit eftir kórstjórann Matthías V. Baldursson. Einnig verða flutt lög sem Rokkkórinn hefur sungið í gegnum árin í bland við vel valin sinfóníu metal lög sem hljómsveitir eins og Epica, Within temptation og Nightwish hafa gert vinsæl. Í raun er þetta í fyrsta sinn í kór sögu Íslands að kór heldur metal tónleika. Til að tryggja að gestir fái metal beint í æð verða þeir Skálmaldarfélagar Jón Geir Jóhannsson á trommur og Þráinn Árni Baldvinsson á gítar. Einnig verða þungavigtarmennirnir Eiður Arnarsson á bassa og Sigurgeir Sigmundsson á gítar, en hann sér einnig um hljómsveitarstjórn.

Rokkkór Íslands hefur alltaf frá stofnun farið heldur óhefðbundnar leiðir. Kórinn skipar núna um 80 söngvara sem flestir eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á popp-, rokk- og dægurlaga söng. Útkoman er kraftmikill og algjörlega einstakur hljómur sem er klárlega nýr sinnar tegundar hér á landi.

Kórinn var stofnaður vorið 2015 af Matthíasi V. Baldurssyni og nokkrum áhugasömum söngvurum sem langaði að búa til öðruvísi kór sem hentaði popp- og rokkröddum og myndi syngja almennilega rokktónlist. Fyrsta verkefni kórsins var að fara í hljóðver og taka upp nokkur vel valin lög sem voru gefin út á Spotify og hlutu mjög góðar viðtökur. Kórinn kom fram í fyrsta sinn í Eldborg haustið 2015 á afmælistónleikum Sniglabandsins og eftir það var ekki aftur snúið, Rokkkórinn var kominn til að vera! Kórinn hélt svo sína fyrstu tónleika í Kaldalóni í febrúar 2016 þar sem tónlist níunda áratugarins (80´s) var gerð góð skil og hefur haldið þó nokkra tónleika síðan með hinum ýmsu þemum, m.a. 70´s, 90´s, íslenskum lögum, singalong og órafmagnaða tónleika. Stærsti viðburður kórsins var án efa að fá það magnaða tækifæri að syngja með the Foreigner í Laugardalshöllinni í maí 2018, þar stóð kórinn virkilega undir nafni sem Rokkkór Íslands og söng með þeim lagið I wanna know what love is. Haustið 2019 fór kórinn svo aftur í hljóðver og söng nokkur lög inn á geisladiskinn Þúsund ára ríkið sem hljómsveitin Huldumenn gaf út og 2022 gaf kórinn út lagið Ríðum, ríðum í samstarfi við strákana í Væb.

Aðsóknin í kórinn hefur aldrei verið meiri og það er alltaf mikill drifkraftur og dugnaður í hópnum. Framtíðin er því björt og spennandi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger