Ævintýri í Jólaskógi

Guðmundarlundur í Kópavogi

123 viðburðir

Miðaverð frá

3.800 kr.

Ævintýri í Jólaskógi verður flutt í Guðmundarlundi á aðventunni, fimmta
árið í röð, en þó er um glænýja sýningu að ræða.

Við stefnum á að setja upp sýninguna, aftur og aftur, um ókomin ár en
gera um leið einhverjar breytingar á hverju ári. Þannig förum við aðra
leið í gegnum skóginn en í fyrra, heyrum nýjar sögur af uppáhalds
tröllafjölskyldunni okkar og kynnumst jafnvel einhverjum nýjum persónum
sem við höfum ekki hitt áður.

Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng sýning þar sem
áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í Guðmundarlundi, vopnaðir
vasaljósum og hitta á ferðum sínum persónur úr uppáhalds jólafjölskyldu
okkar Íslendinga, þau Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og tröllasystkini
þeirra.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að
skyggja. Þannig byrjar fyrsta sýning hvers dags klukkan 17.00 og leggur
þá fyrsti hópurinn af stað í vasaljósagöngu inn í skóginn. Ferðalagið
hefur verið varðað með jólakúlum, luktum og öðru jólaskrauti svo
áhorfendur eigi það ekki á hættu að villast í skóginum.

Eftir stutta göngu koma áhorfendur svo að fyrsta „sviðinu" en þar er vel
tekið á móti hópnum og flutt lítil jólasaga um ævintýri
tröllafjölskyldunnar, lífið í Grýluhelli og jól fyrri tíma. Verkið er
tæpar tíu mínútur í flutningi og þegar því lýkur heldur hópurinn áfram
ferð sinni um skóginn. Litlu innar rekast áhorfendur á fleiri tröll en
alls er um að ræða fjögur „svið“, fjórar litlar sögur, sem hver um sig
er flutt af einhverjum íbúa Grýluhellis. Gönguferðin tekur þannig tæpan
klukkutíma og að henni lokinni geta áhorfendur fengið mynd af sér með
jólasveini auk þess sem boðið er upp á heitt kakó og piparkökur.

Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, koma vel skóaðir og
með vasaljós en öll þessi atriði eru nauðsynleg til að hægt sé að njóta
sýningarinnar til hins ítrasta.

Ævintýri í Jólaskógi var frumflutt fyrir jólin 2020 og er þetta því
fimmta árið sem jolasveinar.is bjóða upp á vasaljósagöngu í
Guðmundarlundi en á hverju ári eru skrifaðar nýjar sögur fyrir íbúa
Grýluhellis og því um nýja sýningu að ræða á hverju ári. Verkið í ár er
eftir Önnu Bergljótu Thorarensen og er það hún, ásamt Andreu Ösp
Karlsdóttur, Grímu Kristjánsdóttur, Hlyni Þorsteinssyni, Jökli Smára
Jakobssyni, Sigsteini Sigurbergssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni,
Vigdísi Höllu Birgisdóttur og Þórunni Lárusdóttur, sem bera ábyrgð á því
að jólasveinafjölskyldan skili sem bestu verki. Flest þekkjum við þau
fyrir störf sín með Leikhópnum Lottu og eru þau vön að setja upp
sýningar utandyra þó vissulega sé óvenjulegt að þau velji náttúruna sem
sýningarstað svona að vetri til.

Við mælum með sýningunni fyrir fjögurra ára og eldri en að sjálfsögðu
eru allir velkomnir til okkar. Leiðin er þó ekki fær kerrum svo yngstu
börnunum þarf að halda á ef þið þurfið að hafa þau með í för. Frítt er
fyrir tveggja ára og yngri. Þá biðjum við ykkur um að skilja hunda eftir
heima og er það bæði svo þeir trufli ekki sýninguna og aðra gesti

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger