Sannleikurinn um vöxt vörumerkja með Jared Schrieber

Ráðstefnusalur Arion banka

19. september

Vilt þú læra meira um hvernig vörumerki ná árangri?

ÍMARK kynnir viðburð með Jared Schrieber, höfundi metsölubókarinnar Breakout Brands, fimmtudaginn 19. september kl. 14 - 17 í höfuðstöðvum Arion banka.

Jared Schrieber ætlar að segja okkur frá því sem hann talar um sem sannleikinn á bak við vöxt vörumerkja, en niðurstöður úr rannsóknum sem hann hefur unnið að storka rótgrónum kenningum um hvað liggur að baki árangri vörumerkja. 

Hann kemur einnig til með að fjalla um þær áskoranir sem vörumerki í vexti standa frammi fyrir, þar sem skammtímamarkmið standa oft í vegi fyrir langtíma sjónarmiði, en Schrieber hefur lagt fram áhugaverðar kenningar um vöxt vörumerkja byggt á kauphegðun milljóna neytenda sem hann kemur til með að deila með okkur.

Að lokum mun hann kafa ofan í lykilatriðin sem aðgreinir framúrskarandi vörumerki og hvernig samspil skammtímasigra og langtímastefnu spilar þar lykilhlutverk. 

En hver er eiginlega Jared Schrieber?

Jared Schrieber hefur verið leiðandi rödd úr heimi akademíunnar þegar kemur að því að nýta gögn um neytendahegðun til að skilja betur hvað liggur að baki velgengi vörumerkja. 

Hann er stofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Numerator og Retail Solutions, tveggja framsækinna fyrirtækja sem hafa umbreytt því hvernig vörumerki skilja viðskiptavini sína. Jared er með meistaragráðu frá MIT og er meðstofnandi Pat Tillman Foundation og Revolution Robotics Foundation.

Dagskrá:

  • Fyrirlestur: Jared Schrieber

  • Spurningar og umræður

  • Pallborðsumræður þar sem Jared Schrieber fær til liðs við sig þrjá sérfræðinga úr markaðsgeiranum.

Tímasetning:

Fimmtudagurinn 19. september kl. 14:00–16:00. Léttar veitingar og tengslamyndun í framhaldi til kl. 17:00

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger