Tix.is

  • 27. okt. - kl. 17:00
Miðaverð:5.400 kr.
Um viðburðinn

Hallgrímspassía Sigurðar Sævarssonar.
Flytjendur eru Kór Hallgrímskirkju og Kammersveit Reykjavíkur, með Unu Sveinbjarnardóttur, konsertmeistara ásamt einsögnvurum.
Steinar Logi Helgason stjórnar og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel.

Einsöngvarar eru:
Jóhann Smári Sævarsson bassi
Fjölnir Ólafsson barítón
Stefán Sigurjónsson bassi
Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór
Þorbjörn Rúnarsson tenór
Hildigunnur Einarsdóttir alt

Miðasala í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir 5.400 kr.

Hallgrímspassía er 75 mínútna óratoría samin árið 2007 af íslenska tónskáldinu Sigurði Sigurði Sævarssyni.

Sigurður Sævarsson stundaði söngnám við Tónlistarskóla Keflavíkur hjá Árna Sighvatssyni. Þaðan lá leiðin í Nýja tónlistarskólann þar sem kennarar hans voru Sigurður Demetz Franzson og Alina Dubik. Árið 1994 hóf Sigurður söng- og tónsmíðanám við Boston University og lauk þaðan mastersgráðu í báðum greinum 1997. Við komuna heim hóf hann störf við kennslu þar til hann var ráðinn skólastjóri Nýja tónlistarskólans. Helstu viðfangsefni Sigurðar í tónsmíðunum hafa tengst mannsröddinni. Hann hefur samið fjölda kórverka, allt frá stuttum a cappella verkum yfir í óratoríur. Mörg þeirra hafa verið gefin út á plötu. Má þar nefna Hallgrímspassíu. Upptakan var tilnefnd sem besta platan í flokki klassískrar og samtímatónlistar. Árið 2022 kom út plata frá Harmonia Mundi útgáfunni þar sem flutt voru Requiem, Magnificat og Nunc dimittis eftir Sigurð. Platan fékk lofsamlega dóma gagnrýnanda, fékk meðal annars fimm stjörnur frá Freya Parr gagnrýnanda BBC Music Magazine. Rick Anderson hjá AllMusic endar gagnrýni sína: And I simply can't praise Sævarsson's Requiem setting highly enough; although the piece is thoroughly modern, it nevertheless invokes a timeless sense of reverence, regret, and devotion. A must-have for all library collections.