© 2024 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
16 sýningar
Miðaverð frá
10.900 kr.
Þetta er Laddi
Hinn óborganlegi Laddi er mættur í Borgarleikhúsið
Frumsýning 3. mars
Salur: Stóra svið
Hver er Laddi? Og hvaðan kemur húmorin sem hefur verið samofinn húmor heillar þjóðar í bráðum hálfa öld? Í þessari sýningu verður skyggnst inn í kollinn á Ladda, uppruni gamalkunnra persóna kannaður, þróun íslensks gríns sett undir smásjá og lyklar að manninum sjálfum á bak við grínið dregnir fram – en fyrst og fremst verður hlegið – og þakkað fyrir alla gleðina. Óborganleg sýning um óborganlegan mann sem fyrir löngu er orðinn þjóðargersemi og almannaeign.
Leikstjórinn og handritshöfundurinn Ólafur Egill hefur löngum sótt í íslenskan veruleika og sett upp hverja verðlaunasýninguna á fætur annarri þar sem hann kryfur samtímann og segir sögur þjóðarinnar. Nægir þar að nefna Níu líf og Ástu sem hann skrifaði og leikstýrði og Elly sem hann skrifaði ásamt Gísla Erni Garðarssyni. Hér fær hann Þórhall Sigurðsson, sjálfan Ladda, í sófann til sín ásamt fremstu gamanleikurum Borgarleikhússins.
Höfundur og leikstjóri: Ólafur Egill Egilsson
Tónlistarstjórn: Jón Ólafsson
Danshöfundur: Lee Proud
Leikmynd: Eva Signý Berger
Búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir
Lýsing: Pálmi Jónsson
Hljóð: Jón Örn Eiríksson
Myndbandagerð: Elmar Þórarinsson
Leikgervi: Elín S. Gísladóttir
Leikarar:
Ásthildur Úa Sigurðardóttir
Birna Pétursdóttir
Halldór Gylfason
Hákon Jóhannesson
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Laddi
Sigurður Þór Óskarsson
Vala Kristín Eiríksdóttir
Vilhelm Neto