Tix.is

Um viðburðinn

Leikfélag Sauðárkróks setur nú upp verkið Litla hryllingsbúðin í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð,
en 15 manns fara með hlutverk í sýningunni. Litla hryllingsbúðin er þekkt verk sem flestir
ættu að þekkja. Söngleikurinn fjallar um hann Baldur sem vinnur í lítilli blómabúð í fátæklegri
götu, Skítþró í skuggahverfi borgarinnar en hann lifir frekar óspennandi lífi. Rekstur
blómabúðarinnar hjá Músnik gengur erfiðlega en í henni vinna Músnik sjálfur, Baldur og
Auður. Baldur er ástfanginn af Auði en hún á kærasta, leðurklæddan og ofbeldisfullan
tannlækni, sem ferðast um á mótorhjóli og beitir Auði ofbeldi. Dag einn kaupir Baldur
dularfulla plöntu, sem hann nefnir Auði II og eftir því sem plantan vex og dafnar aukast
viðskiptin stöðugt meira í blómabúðinni og Baldur verður sífellt vinsælli.

Leikfélagið frumsýnir í byrjun Sæluvikunnar en Sæluvika Skagfirðinga er lista- og
menningarhátíð sem haldin er árlega í Skagafirði. Metnaðarfull dagskrá Sæluviku stendur
yfir í viku og hefst hún formlega síðasta sunnudag í apríl ár hvert.
Leikfélag Sauðárkróks er eitt elsta áhugamannaleikfélag landsins og hefur í mörg ár sýnt
leiksýningar við góðan orðstír. Það var stofnað 13. apríl 1888 en stofnendur voru 16 talsins
og markmið félagsins voru gagn og skemmtun. Félagið stóð fyrir leiksýningum um árabil og
þá helst í Sýslufundavikunni. Það lognaðist þó smám saman útaf. Samt var alltaf leikið á
Sauðárkróki, Stúkan, Kvenfélagið og fleiri sáu til þess. 9. janúar 1941 var Leikfélag
Sauðárkróks stofnað á ný í Bifröst. Síðustu ár hefur leikfélagið sett að jafnaði upp tvær
sýningar á ári, Sæluvikusýningu á vorin og barnasýningu á haustin.