Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar

Borgarleikhúsið

5 sýningar

Miðaverð frá

7.950 kr.

Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar

  Þorleifur Aron, kallaður Doddi, fráskilinn karlmaður á  fimmtugsaldri og Óli Gunnar, yngri bróðir hans hittast  til að horfa á alla leiki Manchester United saman í  sófanum. Leikir enska liðsins eru fastinn sem gefur lífi  þeirra lit en einnig sá tími sem þeir geta eytt saman og  fengið frið frá amstri dagsins. Yfir leiknum fá tilfinningar  þeirra lausan tauminn og í gegnum leikinn fá þeir útrás  auk þess sem óhófleg drykkja þeirra er réttlætanleg.  Þennan tiltekna laugardag sem verkið gerist bregður  út af vananum er Benedikt Hafberg, hinn nýi kærasti  barnsmóður Dodda ásamt söngvaranum Valdimar  bætast óvænt við hópinn að horfa á leikinn. Spennan  innan sem utan vallar eykst sem því nemur og úr verður  óútreiknanleg atburðarás sem spannar 90 mínútur.  Því líkt utan vallar sem innan þá getur allt gerst í heimi  knattspyrnunnar. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er sýning fyrir  alla sem elska og hata fótbolta.

  Höfundar: Sveinn Ólafur Gunnarsson  og Ólafur Ásgeirsson
Hugmynd: Albert Halldórsson,  Ólafur Ásgeirsson, Viktoría Blöndal
Leikstjóri: Viktoría Blöndal
Leikmynd og búningar: Sólbjört Vera Ómarsdóttir
Tónlist: Valdimar Guðmundsson
Lýsing: Ásta Jónína Arnardóttir og Juliette Louste
Sviðshreyfingar: Erna Guðrún Fritzdóttir

Leikarar: Albert Halldórsson, Ólafur Ásgeirsson,  Starkaður Pétursson, Sveinn Ólafur Gunnarsson,  Valdimar Guðmundsson  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger