Kvöldstund með Begga í Sóldögg

Bæjarbíó

21. mars

Sala hefst

8. nóvember 2024, 10:00

(eftir 1 dag)

Hinn mjög svo goðsagnakenndi söngvari Bergsveinn Arilíusson aka Beggi í Sóldögg er flestum unnendum íslenskrar tónlistar kunnugur. Hann hendir nú í afmælistónleika  21.03´25

Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári með Sóldögg fyrir aldamót….

Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg í Bæjarbíó fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu … og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og rifjar upp sögur af skemmtilegum meðreiðarsveinum af vígvellinum , endalausum sveitaballa hringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur.

Söngur og sögumaður : Beggi í Sóldögg

Gítar  og raddir : Gunnar þór Jónsson

Bassi, Kontrabassi : Jón Ómar Erlingsson

Slagverk  og raddir : Eysteinn Eysteinsson

Saxófónn : Steinar Sigurðarson

Trompet : Snorri Sigurðarson

Básúna :Samúel J Samúelson

Gestur : Birgir Hákon   111

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger