Stewart Copeland - Police Deranged For Orchestra

Harpa

•

21. mars

Sala hefst

1. desember 2026, 09:00

(eftir 5 daga)

Goðsögnin úr The Police kemur til Íslands með stórbrotna tónleikaveislu!

Stewart Copeland, hinn goðsagnakenndi trommuleikari og stofnandi The Police, kemur fram í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 21. mars 2027 ásamt sinfóníuhljómsveitinni SinfoniaNord. Þar munu ódauðlegir stórsmellir The Police hljóma í nýjum og kraftmiklum útsetningum á tónleikum þar sem rokkið og sinfóníutónlistin mætast með stórkostlegum hætti.

Árið 2027 markar tvöföld tímamót í lífi Stewart Copeland. Hann fagnar 75 ára afmæli sínu og jafnframt verða liðin 50 ár frá stofnun The Police, einnar áhrifamestu og vinsælustu rokksveitar allra tíma. Af þessu tilefni heldur hann í tónleikaferð um heiminn með hina rómuðu sýningu sína, Police Deranged for Orchestra, og kemur meðal annars fram í glæsilegum tónlistarhúsum á borð við óperuhúsið í Sydney, Carnegie Hall í New York og Eldborg í Hörpu.

Stewart Copeland er almennt talinn einn fremsti trommuleikari rokksögunnar. Með einstökum og kraftmiklum trommuleik sínum átti hann stóran þátt í að skapa hinn óviðjafnanlega hljóm The Police, sem seldi yfir 90 milljónir hljómplatna um allan heim. Hann hefur hlotið sjö Grammy-verðlaun, verið tekinn inn í frægðarhöll rokksins og skipar sess meðal tíu bestu trommuleikara allra tíma að mati Rolling Stone.

En Copeland er miklu meira en stórkostlegur trommuleikari. Hann hefur einnig getið sér gott orð sem tónskáld og samið tónlist fyrir kvikmyndir, óperur, ballettsýningar og sinfóníuhljómsveitir. Í Police Deranged for Orchestra sameinar hann þessa tvo heima á sinn einstaka hátt.

Á tónleikunum í Eldborg munu stórsmellir á borð við „Roxanne“, „Every Breath You Take“, „Message in a Bottle“, „Don't Stand So Close to Me“ og „Every Little Thing She Does Is Magic“ öðlast nýtt líf í glæsilegum útsetningum Copelands sjálfs.

Copeland sest að sjálfsögðu við trommurnar og með honum koma fram þrír frábærir söngvarar, gítarleikari og bassaleikari ásamt SinfoniaNord. Saman skapa þau magnaða tónleikaupplifun þar sem krafturinn úr rokkinu mætir hljómfegurð sinfóníuhljómsveitarinnar.

Copeland sjálfur er fullur tilhlökkunar:

„Police Deranged hefur alls staðar slegið í gegn. Það er kannski ekki skrýtið þegar við höfum öll þessi frábæru lög sem fólk þekkir, stórkostlega söngvara og nýjar útsetningar fyrir sinfóníuhljómsveit sem gefa tónlistinni alveg nýjan blæ. Og sjálfur verð ég bara betri á trommurnar með hverjum tónleikunum!“

Þetta verður einstakt tækifæri til að upplifa einn áhrifamesta trommuleikara rokksögunnar á sviði í Eldborg og heyra einhver vinsælustu lög síðustu áratuga í alveg nýjum búningi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger