Hið óskiljanlega

Barðavorgur 13

•

5. desember

Miðaverð frá

4.900 kr.

  Hið óskiljanlega  
  

Í Barðavogi 13, á fyrrum heimili og vinnustofu myndlistarmannsins Kristjáns Davíðssonar, mætast sellóleikarinn Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og rithöfundurinn Maó Alheimsdóttir í opnunarviðburði Ópus Reykjavík.

Tónlist og ljóð fléttast saman við myndlist Kristjáns og rýmið sem hann bjó og starfaði í. Verkið sprettur úr samtali við húsið og þau ummerki sem þar lifa. Hversdagsleikinn tekur á sig nýja mynd og umbreytist í draumkennt ferðalag inn í hið óskiljanlega, þar sem ólík tungumál listformanna kallast á og mynda nýja heild.

Viðburðurinn er um klukkustund að lengd. Gestum er boðið að staldra við, njóta anda hússins - og ylja sér við kaffi og piparkökur meðan á dagskránni stendur. Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Álfheiði Erlu Guðmundsdóttur, listrænan stjórnanda Ópus Reykjavík.

Viðburðurinn fer fram tvisvar þann 5. desember,  klukkan 14:00 og klukkan 16:00. Fjöldi gesta er takmarkaður.

Ópus Reykjavík er ný þverfagleg listasería sem leiðir saman íslenskt og alþjóðlegt listafólk úr fjölbreyttum miðlum. Með tónleikum, sýningum, samtölum, vinnustofum og nýjum verkefnum skapast vettvangur þar sem listafólk getur hist, miðlað hugmyndum og kannað nýjar leiðir til samstarfs. Serían fer fram nokkrum sinnum yfir árið og er lifandi vettvangur fyrir listrænar hugmyndir, fólk og ólíkar nálganir - opinn fyrir tilraunum, samtali og hinu óvænta. Fyrsta útgáfa Ópus Reykjavík, Ópus 1, fer fram í desember 2026.

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir er íslensk-bandarískur sellóleikari sem hefur vakið athygli fyrir „seiðandi“ tónlistarflutning (The Independent) og verið hrósað fyrir „tæknilega yfirburði … og einstakan tónlistarlegan næmleika“ (Morgunblaðið). Hún hefur skapað sér sterka og persónulega rödd í listsköpun sinni þar sem næmni og djörf og kraftmikil sviðsframkoma mætast. Meðal nýlegra hápunkta á ferli hennar eru tónleikar í Carnegie Hall, Southbank Centre, Fílharmóníu Varsjár, Lincoln Center og Banff Centre. Hún hefur einnig komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Konunglega tónlistarháskólans í London, meðal annarra. Túlkun hennar á sellósvítum Bachs sex í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík var lýst sem „upplifun sem vekur djúpa lotningu“ (Fréttablaðið).

Maó Alheimsdóttir er íslenskur rithöfundur búsett í Reykjavík og spannar listræn sköpun hennar ljóðlist, prósa og þverfaglega sviðslist. Í verkum sínum rannsakar hún tengsl mannlegra tilfinninga og landslags og fléttar gjarnan saman hljóði, myndmáli og texta. Með rætur bæði í pólskum arfi sínum og íslenskri málvitund brúar hún bilið milli bókmenntasköpunar og samfélagslegra verkefna í samstarfi við fjölbreyttar og fjölmenningarlegum listrænar raddir. Hún er með meistaragráðu í ritlist frá Háskóla Íslands. Á sumrin starfar hún sem leiðsögumaður á hálendi Íslands, en sú reynsla er mikilvægur innblástur í listrænni sköpun hennar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger