© 2026 Tix Miðasala
Þjóðleikhúsið
•
1. desember
Miðaverð frá
3.500 kr.




Improv Ísland heldur spunasýningu til styrktar Átaki, félagi fólks með þroskahömlun, þriðjudaginn 1. desember kl. 20:00.
Fúsi er gestur kvöldsins! Þú gætir þekkt hann úr Fúsi, aldur og fyrri störf, þar sem hann sagði sína eigin sögu á sviði Borgarleikhússins. Sýningin hlaut tvenn Grímuverðlaun!
Fólk með þroskahömlun hefur sögur að segja. Við viljum segja þær sjálf, á okkar eigin forsendum. Átak er eina félagið á Íslandi sem er stjórnað af fólki með þroskahömlun. Við berjumst fyrir því að fá að ráða eigin lífi, tala fyrir okkur sjálf og hafa áhrif á ákvarðanir sem varða okkur.
Við gerum myndbönd fyrir samfélagsmiðla, höldum vinnustofur og hittum stjórnvöld til að tala fyrir réttindum okkar.
Með því að kaupa miða styður þú við réttindabaráttu fólks með þroskahömlun á Íslandi.
Sjáumst í Þjóðleikhúskjallaranum.

