© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
15. apríl
Miðaverð frá
14.900 kr.




Árlegt Velsældarþing í Reykjavík er mikilvægur vettvangur samræðna og samvinnu meðal stjórnmálamanna, leiðtoga fyrirtækja, fræðimanna og sérfræðinga á heimsvísu þar sem leitast er við að forgangsraða í þágu velsældar og lífsgæða almennings á breiðum grunni. Velsældarþingið leggur áherslu á að finna nýjar leiðir sem frábrugðnar hinni hefðbundu nálgun út frá eingöngu efnahagslegum mælingum. Þess í stað eru velsæld og lífsgæði metin út frá fjölmörgum félagslegum og umhverfislegum þáttum jafnt sem efnahagslegum.
Þema þingsins 2027, „Saman fyrir velsæld – máttur þess að tengja saman fólk, stefnur og náttúru“ (enska Together for Wellbeing – The Power of Connecting People, Policy and Planet) undirstrikar mikilvægi samstarfs við að byggja upp hagkerfi sem setur velferð fólks og jarðarinnar í forgang. Fimmta Velsældarþingið leggur áherslu á innihaldsríka umræðu, miðlun þekkingar og reynslu og samstilltar aðgerðir. Jafnframt byggir þemað á fyrri umræðum um að endurskilgreina framfarir og setja velsæld í forgrunn þegar við tökum ákvarðanir sem móta samfélög okkar.
Velsældarþingið verður haldið í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi Reykjavíkur, og er skipulagt af embætti landlæknis með styrk frá Evrópusambandinu. Fyrsta Velsældarþingið í Reykjavík var haldið árið 2023. Nánari upplýsingar, þar á meðal upptökur frá fyrri þingum og upplýsingar um fyrirlesara, má finna á heimasíðu þingsins: www.wellbeingeconomyforum.is

