Útgáfutónleikar með Dagbjörtu Rúriks og Heather Ragnars

White Lous / Mama Reykjavík

•

29. nóvember

Sala hefst

6. nóvember 2026, 08:00

(eftir 4 daga)

  Útgáfutónleikar með Dagbjörtu Rúriks og Heather Ragnars  

  Náið tónlistarkvöld með Dagbjörtu Rúriks og Heather Ragnars á Mama Reykjavík

Á efnisskránni eru frumsamin lög og sögur á bak við tónlistina sem kalla fram sorg, gleði og von. Dagbjört fagnar útgáfu nýrrar smáskífu, Break My Own Heart, sem hún samdi til minningar um mann sem hún elskaði og sem lést ungur.
Heather flytur meðal annars lög af smáskífu sinni Nothing to Offer, sem fjallar um að elska manneskju sem glímir við fíkn, ásamt öðru frumsömdu efni um sambönd, lífið og tilveruna.

Kvöldið sameinar tvær persónulegar frásagnir sem tengjast á ólíkan hátt. Önnur fjallar um missi, hin um ást, og báðar varpa ljósi á þau áhrif sem fíkn getur haft á líf fólks og þeirra sem standa því næst.
Kvöldið býður upp á einlæg lög, hlýlegt andrúmsloft og tónlist sem leyfir bæði sársauka og gleði að eiga sér stað í sama rýminu.

Dagskrá
🎵 Tónleikar með Dagbjörtu Rúriks og Heather Ragnars
🍷 Notaleg stemning og drykkir á Mama Reykjavík

Við hlökkum til að sjá ykkur.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger