© 2026 Tix Miðasala
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal
•
18. nóvember
Miðaverð frá
34.900 kr.




Verklegt grunnnámskeið í Claude með Óskari Þórðarsyni
Verklegt grunnnámskeið í Claude með Óskari Þórðarsyni. Við förum skref fyrir skref í litlum hópi. Þú þarft ekki að kunna að forrita.
Hvenær: Miðvikudaginn 18. nóvember 2026, kl. 09:00–13:00, með hléum.
Húsið opnar kl. 08:45.
Hvar: Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Smiðjan (fjölnota rými).
Heimilisfang: Úlfarsbraut 128, 113 Reykjavík.
Námskeiðsgjald: 34.900 kr. á mann.
Hámarksfjöldi: 12 þátttakendur.
Þetta lærir þú
• Að semja skýr fyrirmæli frá grunni með Claude og vista þau í möppu.
• Að láta Claude lesa skjöl, flokka upplýsingar og búa til Excel-skjal.
• Að yfirfara niðurstöður og biðja um breytingar.
• Að geyma leiðbeiningar um vinnuaðferðina og nota hana við önnur verkefni.
Þú þarft
Fartölvu (Windows eða Mac), Claude Desktop uppsett og virka Pro- eða Max-áskrift. Pro nægir. Áskriftin er ekki innifalin og greiðist sérstaklega til Anthropic. Dagskrá, undirbúningur og persónuvernd eru á námskeiðssíðunni.
Innifalið
Fjögurra klukkustunda námskeið með hléum, æfingagögn, leiðbeiningar og aðstoð í litlum hópi. Innan námskeiðsins færðu 25 mínútur til að vinna eigið verkefni með aðstoð kennarans.
Leiðbeinandi
Óskar Þórðarson, stofnandi OT AI, hefur yfir 20 ára reynslu af því að stofna fyrirtæki, stýra teymum og byggja upp rekstur. Kennslan byggist á rekstrarreynslu hans og daglegri notkun gervigreindar.
Nánar: https://otai.is
Námsstyrkir
Þú gætir átt rétt á styrk hjá stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.
Dæmi: Ef þú færð samþykktan 90% styrk og átt næg ónýtt réttindi færðu 31.410 kr. endurgreiddar. Kostnaður þinn eftir endurgreiðslu er þá 3.490 kr.
Þú greiðir fullt námskeiðsgjald, 34.900 kr., við kaup og sækir sérstaklega um styrk. Styrkhæfi námskeiðsins hefur ekki verið staðfest hjá sjóðunum. Endurgreiðslan ræðst af samþykki sjóðsins, styrkhlutfalli og réttindum þínum. Kannaðu rétt þinn áður en þú bókar.
Fyrirtæki geta einnig kannað rétt til fræðslustyrkja vegna þátttöku starfsfólks.
Miðakaup og endurgreiðslur
Miðakaup og endurgreiðslur fara eftir skilmálum Tix. Lögbundinn réttur kaupanda helst óskertur.
https://tix.is/page/skilmalar
Námskeiðssíða (dagskrá og nánari upplýsingar)
https://otai.is/namskeid
Námskeiðshaldari
OT AI ehf., kt. 671113-1520.
Tengiliður: Óskar Þórðarson, oskar@otai.is.
Námskeiðið er haldið sjálfstætt af OT AI, ekki á vegum Anthropic.

