Ég er kominn heim

Sportbarinn Ölver

•

17. nóvember

Sala hefst

30. október 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

  Ég er kominn heim

Við í sviðslistahópnum Atvinnumenn bjóðum ykkur, traustu og tryggu áhorfendum og aðdáendum, til okkar á Ölver á þessum merka leikdegi. Eins og þið öll vitið, á fótboltinn stóran stað í hjarta okkar allra og því er mikilvægt að mæta og sýna stuðning. Það er ekkert að óttast, öll eru velkomin! Svo lengi sem þú heldur með liðinu okkar og ert 13 ára eða eldri.

Psst… það er happy hour á Ölver frá kl 15-19.

Sýningin var frumsýnd á State of the Art festival í október fyrir troðfullum sal. Því höfum við ákveðið að bjóða ykkur upp á þessa einu sýningu í viðbót fyrir áramót... svo sjáum við hvað gerist á nýju ári. “Ég er kominn heim” er ekki fyrsta verk Atvinnumanna. Sumarið 2025 hófu þau störf sín á Dansverkstæðinu þar sem að útkoman var fjölskyldu-danssýningin DEILDIN. DEILDIN var sýnd þó nokkrum sinnum síðasta árið fyrir fullan sal á Dansverkstæðinu, Komum út í mínus hátíðinni sem og á grasblettum Reykjavíkurborgar. Okkur langar til að setja upp 90 mínútna sýningu á næstunni en á meðan njótum við okkar að framleiða styttri verk í anda fótboltans.

Verkið er um 40 mínútur að lengd.
  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger