© 2026 Tix Miðasala

Dægurflugan
•
24. apríl
Sala hefst
4. nóvember 2026, 10:00
(eftir 1 viku)




Skráðu þig hér, á póstlista Dægurflugunnar, til að fá nánari upplýsingar um viðburðinn og til að tryggja þér miða í forsölu.
Sir Elton John þarf vart að kynna en hann fagnar 80 ára afmæli sínu þann 25.mars 2027.
Því efnum við til tónlistarveislu þar sem öll hans bestu og þekktustu lög fá að hljóma.
Hann hefur verið einn vinsælasti tónlistamaður heims síðustu áratugi og á óviðjafnanlegt safn laga sem hann hefur samið í samstarfi við lagahöfundinn Bernie Taupin.
Lög eins og
· Rocket Man
· Goodbye Yellow Brick Road
· Tiny Dancer
· Can You Feel the Love Tonight
· Sacrifice
· Candle in the Wind
· Circle Of Life
· Crocodile Rock
Ásamt mörgum öðrum perlum.
Á þessum tónleikum mun úrval íslenskra söngvara eins og t.d. Stefán Hilmarsson og Sigríður Beinteinsdóttir flytja mörg af hans þekktustu lögum ásamt hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafsson.
Árið 2019 kom út myndin The Rocketman þar sem fjallað er um lífshlaup Elton.
Í kjölfarið á einmuna vinsældum myndarinnar fór Elton í sitt kveðju tónleikaferðalag.
Elton spilaði sína síðustu tónleika í Stokkhólmi 8. júlí 2023. Hann var virkur tónlistarmaður í 61 ár, og gaf út 31 breiðskífur. Vert er að minnast þess að árið 2000 spilaði Elton John á Laugardalsvelli fyrir um 10.000 manns.
Miðasala hefst 3. nóvember.

