Masterclass │ Anne Sofie von Otter & Bengt Forsberg

Dómkirkjan í Reykjavík

•

8. desember

Miðaverð frá

3.000 kr.

  Masterclass │ Anne Sofie von Otter & Bengt Forsberg  

  

Ópus Reykjavík kynnir masterclass með sænsku óperusöngkonunni Anne Sofie von Otter og píanóleikaranum Bengt Forsberg. Masterclassinn fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 8. desember á milli kl. 13-16:30. Á námskeiðinu gefst þátttakendum og áheyrendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á túlkun ljóðasöngva (lieder, mélodies, concert repertoire, chansons) og í senn fá innsýn í listræna nálgun og áratuga reynslu leiðbeinendanna. Sex söngvarar taka virkan þátt og deila sviðinu með píanóleikaranum Bengt Forsberg. Sækja má um virka þáttöku í masterclassinum hér: www.opusreykjavik.is/masterclass

Anne Sofie von Otter er ein fjölhæfasta og dáðasta söngkona sinnar kynslóðar og hefur verið í fremstu röð alþjóðlegs tónlistarlífs í fjóra áratugi. Verkefnaskrá hennar er óvenju víðfeðm og fjölbreytt, hún hefur sungið í virtustu og eftirsóttustu óperuhúsum heims og er einnig margverðlaunuð fyrir túlkun ljóðasöngs. Hljóðritaskrá hennar er sérdeilis glæsileg en hún er einn mest hljóðritaði listamaður okkar tíma og hefur sent frá sér meira en hundrað rómaðar plötur, langflestar hjá Deutsche Grammophon. Hún hefur hlotið fern Grammy-verðlaun og fjölmargar tilnefningar til sömu verðlauna auk ótal annarra verðlauna og viðurkenninga.

Bengt Forsberg hefur um langa hríð verið einn virtasti og eftirsóttasti píanóleikari sinnar kynslóðar og átt í gjöfulu samstarfi við Anne Sofie von Otter um áratugaskeið. Þau hafa hljóðritað fjölda rómaðra platna sem vakið hafa heimsathygli og uppskorið ótal verðlaun og viðurkenningar, má þar nefna verðlaunaplötur með sönglögum eftir Edvard Grieg, Jean Sibelius og Franz Schubert auk fjölda annarra. Verkefnaskrá Forsberg er afar víðfeðm en hann hefur lagt sérstakta rækt við tónlist gleymdra og lítt þekktra meistara frá fyrri tíð.

Fimmtudagskvöldið 10. desember má hlýða á Anne Sofie von Otter og Bengt Forsberg ásamt sópransöngkonunni Álfheiði Erlu Guðmundsdóttur og gítarleikaranum Fabian Fredrikssen á tvennum jólatónleikum í Norðurljósasal Hörpu. Nálgast má miða hér: www.harpa.is/vidburdir/22222

Tónleikarnir og Masterclassinn eru hluti af Ópus 1, upphafi listaseríunnar Ópus Reykjavík.

Listaserían Ópus Reykjavík var stofnuð árið 2025 af söng- og sjónlistakonunni Álfheiði Erlu Guðmundsdóttur. Verkefnið leiðir saman íslenskt og alþjóðlegt listafólk úr ólíkum listgreinum og skapar vettvang fyrir samstarf, samtal og nýjar hugmyndir. Með tónleikum, sýningum, gjörningum, samtölum, vinnustofum og nýjum verkum gefst listafólki úr ólíkum kynslóðum, menningarheimum og listgreinum tækifæri til að hittast og skapa saman.  

Nafnið Ópus Reykjavík er sótt í latneska orðið opus, sem merkir verk eða sköpun. Í grunninn snýst Ópus Reykjavík um að skapa tíma og rými fyrir listafólk til að hittast, deila hugmyndum og sjá hvert annað í nýju samhengi.

Ópus Reykjavík sækir innblástur í óperuna, þar sem ólíkar listgreinar mætast og vinna saman – tónlist, rödd, leiklist, myndlist, hreyfing, ljós, búningar og hönnun. Ópus Reykjavík tekur þessa nálgun út fyrir óperuhúsið og inn í ólík rými og nýjar samsetningar. Reykjavík er órjúfanlegur hluti af verkefninu. Viðburðir fara fram víða um borgina, í tónleikasölum, galleríum, kirkjum, vinnustofum, bókasöfnum, almenningsrýmum og á öðrum óhefðbundnum stöðum. Rýmið er valið í samtali við verkið og listafólkið og verður þannig sjálft hluti af upplifuninni.

Ópus Reykjavík vill skapa nánd milli listafólks og áhorfenda. Alþjóðlegt listafólk fær tækifæri til að vinna og skapa í Reykjavík í samstarfi við íslenskt listafólk, en áhorfendur fá tækifæri til að kynnast nýjum verkum og listrænum röddum í nánara og óhefðbundnara samhengi. Samtöl, vinnustofur og meistaranámskeið skapa jafnframt rými fyrir fræðslu, miðlun og beint samtal milli listafólks og þátttakenda. Ópus Reykjavík fer fram í nokkrum útgáfum yfir árið.

Hver útgáfa er ólík og í hvert sinn kynnumst við nýju listafólki, viðfangsefnum, rýmum og formum. Ein útgáfa getur sameinað tónleika, sýningu, samtal og vinnustofu, en sú næsta getur tekið allt aðra stefnu. Það er ekkert eitt form fyrir Ópus Reykjavík. Listafólkið, verkin, hugmyndirnar og staðirnir móta hverja útgáfu. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk getur upplifað list, lært, deilt hugmyndum og fundið nýjar leiðir til samstarfs. Markmiðið er að fjármunirnir skili sér sem mest beint til listafólksins og þeirra verkefna sem Ópus Reykjavík stendur að.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger