Frönsk jól með Eiríksson Brasserie – Jólakvöld í Santé

Rannsóknarsetur Santé, Skeifunni 8

•

2. - 4. desember

Miðaverð frá

21.900 kr.

  Í ár koma jólin þrisvar. 

Í nóvember og desember breytist Santé í Skeifunni í hátíðarsal: eitt veglegt langborð fyrir 25–30 gesti þar sem réttirnir ganga manna á milli eins og í ekta fjölskylduboði. Hver vika er helguð sinni þjóð og sínum veitingastað.

 „Réveillon“ kemur af frönsku sögninni réveiller, að vekja – forn siður þar sem vakað var fram yfir miðnæturmessu og líkami og andi svo vaktir með veislu. Matreiðslumenn Eiríksson Brasserie, með Friðgeir í broddi fylkingar, stýra pottunum þessa vikuna. Aðalrétturinn er Bresse-kjúklingur, hátíðarfugl Frakka – kallaður drottning alifuglanna og eini alifugl heims með eigin upprunavottun. Hann ber liti franska fánans: bláa fætur, hvítt fiður og rauðan kamb.

MATSEÐILL
Lystauki og forréttur að hætti hússins Aðalréttur: Bresse-kjúklingur ásamt meðlæti Innifalið í miðaverði: matur og öll þjónusta. Vín er keypt sér af vínseðli Santé með hóflegri álagningu.

Kvöldið stendur kl. 18–22 í Santé Skeifunni, Skeifan 8.
Látið vita af ofnæmi og sérþörfum á sante@sante.is og við gerum okkar besta í samráði við eldhúsið.

Fyrirtæki geta bókað heilt kvöld fyrir 25–30 manns – sjá shop.sante.is/jolabord.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger