© 2026 Tix Miðasala
Rannsóknarsetur Santé, Skeifunni 8
•
25. - 27. nóvember
Miðaverð frá
21.900 kr.




Í ár koma jólin þrisvar.
Í nóvember og desember breytist Santé í Skeifunni í hátíðarsal: eitt veglegt langborð fyrir 25–30 gesti þar sem réttirnir ganga manna á milli eins og í ekta fjölskylduboði. Hver vika er helguð sinni þjóð og sínum veitingastað. „Nochebuena“, hin góða nótt, er það sem Spánverjar kalla aðfangadagskvöld – og þá stendur gleðskapurinn oft fram á rauðanótt.
Meistararnir á Skreið leiða gesti í allan sannleika um spænska jólasiði. Á borðið kemur Txuletón Clandestino frá Txogitxu. Imanol Jaca, baskneski slátrarinn, hefur í aldarfjórðung leitað uppi nautgripi sem lifað hafa 12–20 ár á úthaga. Clandestino er sjaldgæfasti bitinn, valinn eingöngu út frá fitusprengingu, og fæst aðeins í takmörkuðu upplagi.
MATSEÐILL
Lystauki og forréttur að hætti hússins Aðalréttur: Txuletón Clandestino
Innifalið í miðaverði: matur og öll þjónusta. Vín er keypt sér af vínseðli Santé með hóflegri álagningu.
Kvöldið stendur kl. 18–22 í Santé Skeifunni, Skeifan 8. Látið vita af ofnæmi og sérþörfum á sante@sante.is og við gerum okkar besta í samráði við eldhúsið.
Fyrirtæki geta bókað heilt kvöld fyrir 25–30 manns – sjá shop.sante.is/jolabord.

