© 2026 Tix Miðasala
Dómkirkjan í Reykjavík
•
12. - 13. nóvember
Miðaverð frá
2.900 kr.




Brothætt: Ritual III – Fyrirgefningin
Brothætt: Rituall II - Fyrirgefningin er þriðja og síðasta rítúalið í Brothætt. Verkið byggir á nafnlausum játningum sem safnað var frá almenningi. Þær spanna allt frá smávægilegum yfirsjónum til athafna sem hafa valdið usla, skaða eða sársauka. Rítúalið er flutt sem víxlsöngur fyrir tvískiptan kór þar sem játningar og fyrirgefningar hljóma á víxl. Gestum er boðið að taka þátt í táknrænum athöfnum og samsöng. Þannig verður til sameiginlegt rými þar sem við getum horfst í augu við eigin ófullkomleika og mætt sektarkenndinni af mildi og samkennd.
Höfundur og leikstýra: Steinunn Knúts-Önnudóttir
Tónsmiður: Jóhanna Vala Höskuldsdóttir
Kóreograf kórs: Ólöf Ingólfsdóttir
Listræn ráðgjöf Brogan Davison
Þátttakendur: Hinseginkórinn
Hljómsveitin Evurnar og gestir
Framleiðandi: Dansverkstæðið
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á https://www.reykjavikdancefestival.com/

