© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
14. nóvember
Miðaverð frá
5.500 kr.




RAKEL & Halldór Eldjárn – EITTHVAÐ / ANNAÐ í Hannesarholti
Rakel Sigurðardóttir og Halldór Eldjárn fagna útgáfu plötunnar EITTHVAÐ / ANNAÐ með tónleikum í Hannesarholti þann 14. nóvember.
Fyrir nokkrum árum tóku Rakel og Halldór upp á því að semja lög við nokkur af sínum uppáhaldsljóðum eftir skáld úr þeirra nánasta umhverfi. Ljóðin eru eftir Þórarin Eldjárn, Brynju Hjálmsdóttur, Melkorku Ólafsdóttur og Huldu.
EITTHVAÐ / ANNAÐ var hljóðrituð í Hljóðrita í Hafnarfirði í mars 2025. Á plötunni leika bassaleikarinn Birgir Steinn Theodorsson og gítarleikarinn Hilmar Jensson, ásamt Rakel sem syngur og Halldóri sem leikur á trommur.
Þau koma nú loksins aftur saman í Hannesarholti og flytja plötuna í heild sinni. Það verður notaleg kvöldstund í fallegu umhverfi Hannesarholts og platan verður að sjálfsögðu til sölu á sérstöku útgáfutónleikaverði.
Komið með! Það verður gaman og notalegt!

